IngaRúnBjarnadóttir

Come to the dark side.... we have cookies :)

23.07.2007 20:11:20 / ingaa

sveeeeefnleysi :)



ég er búin að finna enn einn indælan galla við mig, ég stilli símann minn á kvöldin (vekjaraklukkuna) fer að sofa... allt í lagi með það, tel nokkrar kindur og dreymir mína freðnu drauma. Sofisof, klukkan hringir, engin inga... aaaaa, snooooose...snoooze.... SNOOOZE.... ég vakna ekki, það er ekki fokkin séns að vekjaraklukkan veki mig, þú getur falið hana inní fataskápnum mínum undir rúminu mínu, og heldur að þú eigir séns á að vekja mig því ég verð svo pirruð á að leita að henni að ég vakna algerlega, neeei elskan mín, ég leita í svefni, ég slekk á henni í svefni og ég snoosa í svefni, ég hef reyndar ekki reynt að lata einhver hlaupa um húsið með hana og ég elti... myndi hugsanlega enda illa og viðkomandi fái fjarstýringu i hausinn og rotist, en þar sem ég tek ekki ábyrgð á gjörðum mínum í sambandi við vekjaraklukkur og það að ganga í svefni þá mæli eg ekki með þessu, ef ég er ein heima þá virkilega vakna ég ekki. Einhverjar hugmyndir aðrar en þær að kaupa þrjátíu vekjaraklukkur? gengur örugglega ekki.. annars gæti það verið að ég sé orðin ónæm fyrir vekjarahljóðinu...

Svo annað í sambandi við svefnvenjur mínar, ég á það til að leggja mig eftir vinnu þar sem ég sef fáranlega lítið á nóttunni, jújú, fólk myndi halda að ég komist upp með það og fái min stutta svefn.. heyrðu, í hvert einasta skipti sem ég legg mig er hringt í mig svona fimmtíu sinnum þangað til að ég er orðin það ánægð að ég er byrjuð að urra "HVAÐ?!" í símann... viktor orri: ömm, ég ætlaði nú bara að spyrja hvað þú ætlaðir að borða i kvöldmat.. " :$
 ég: heehh ja ömm sorry, veitiggi bæjó :*
erum við að tala um þráhyggju hérna?

Vildi bara vera bitur í friði og deila þessu með ykkur

» 20 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 19:19:47 / ingaa

inga lifir

ég held nú bara að þessi blessaða síða hafi verið í sumarfríi, er búin að hugleiða það að gefast upp á þessu en þar sem allir litlu íslendingarnir hafa ákveðið að gerast lúðar og stofna myspace síður sem ég btw kann ekkert á hef ég ákveðið að gerast enn meiri lúði og gera uppreisn með því að halda áfram með blog.central, lengiii lifi!

Annars er alveg slatti að gera hjá mér, stutt í bílbprófið, afmæli, stærðfræðiprófið ooog brjálaðan yfirmann...
föstudagurinn 13 gott fólk, happadagur, fæddist líka þáá...
Fæ það´því miður ekki á afmælisdaginn þar sem ég er lítil og vitlaus og þrjósk og ákvað að geyma þetta bara noookkra daga í viðbót, og svo bara noookra daga í viðbót.. og svo nookrum dögum of seint... ég veit ekki hvað ég á að gera við sjálfa mig.

Sumarið er búið að vera geðveikt fínt, fór á Karabiska hafið í siglingu, jamaica, mexico, grand cayman og haiiti. og svo vika í florida, versluðum alveg slatta.
Fórum eitt kvöldið, ég , lena, Jonni og eva í aventura mollið að sækja einhverja augnskugga fyrir lenu. Stóðum þarna inni í smástund og sögðum svo við lenu og evu ða við ætluðum að fara í aðra buð. Það var einhver undarlegu svartur gaur í rauðum galla með buxurnar á hælunum búinn að standa fyrir utan búðina og horfa inn í svona tíu mínutur, an þess að hreyfa sig. En allt í lagi með það við löbbum bara ut og hann starir á okkur.. um leið og eg stíg ut ur buðinni þá snyr hann sér við og labbar a eftir mer, svo keemur jonni lika.. við förum niður rullustigann og hann elti okkur, síðan fórum við inn i einhverja stelpu buð sem hann hafði ekkert erindi i og hann elti, stoppaði svona einn meter frá okkur og starði bara... ég svona shiiit.. ok jæja komum okkur.. fórum ut og upp rullustigann og hann elti ennþá þangað til að við stungum hann af. Heyrðu síðan kom í ljós að þettta er bara einvher dóphaus sem var buið að henda tíu sinnum ut og hafði sínt litlum börnum tippið á sér margoft, eitthvað ógeð bara...


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 17:47:49 / ingaa

En gaman :


Er einhver blog.central. snillingur? kannekkikannekkikannekki! urr...
Ég er að verða geðveik. Ég er búin að læra eins og líf mitt velti á því. Þegar ég sef dreymir mig lærdóm, þegar ég vaki stunad ég lærdóm.Þið kallið mig eflaust ruglaða en ég hef óstjórlega mikla löngun til að kveikja í jarðfræði bókinni minni. Hún er búin að svipta mig allri lífslöngun síðustu þrjá daga. Þetta er án efa ein leiðilegasta helgi sem ég hef upplifað. Upplýfgandi blogg? Já ég veit ég er jákvæð.

Ég vaknaði í gærmorgun klukkan tíu, fór að læra og lærði samfleitt alla daginn án þess að stíga útúr húsi. Ég tók mér tvær 15 mínutnua pásu og gleymdi næstum því að borða.
(heimsku heimsku próf)

Þar að auki eru allir litlir hlutir byrjaðir að pirra mig, sem dæmi má nefna að "N" takkinn á lyklaborðinu er með uppreisn, maður þarf að ýta svona sjö sinnum á hann svo að hann virki, en gaman.
Ég er ekki bitur.(heimski n takki)

Sit núna inni í tölvuherbergi og geri allt sem í mínu valdi stendur til að forðast dönskubækurnar. Svo finn ég einhverja sjúklega mikla brunalykt, sem á eflaust upptök sín í hausnum á mér.
En svona grínlaust ég held tölvan eða eitthvað sé að brenna hérna.

Herbergið mitt virðist hafa óstjórnlega mikla hneigð til þess að vera allt í drasli þegar ég þarf svo ekki á því að halda, og ef ég tek til, Þá kemur baaara meira drasl, mér til mikillar ánægju. Ég veit ekki hvað ég á af mér að gera..

En ég get þó nefnt einn jákvæðan hlut í allri þessari "myrkramessu" minni. Viktor orri er hættur að spreyja ilmvatni á veggina mina og spegla. (ééég finn ennþá bruuunalykt)

Ég var búin að velta því fyrir mér mánuðum saman hvaðan í fjandanum þessir hvítu blettir á veggjunum minum og speglunum kæmu eiginlega. Sama þótt ég þryfi þá af komu þeir alltaf aftur. Þar til einn sólrýkan sunnudag að ég var nýbuin að borða morgunmat og fór svo niður að sækja eitthvað, stóð ég ekki púkann að vera, hann hlaupandi um allt herbergið með tvo brúsa af ilmvatni spreyjandi á allt eins og honum væri borgað fyrir það.
Þið hefðuð átt að sja svipinn á honum, hann vissi svo að hann var að gera eitthvað af sér. Og hljóp á milljón útúr herberginu og lét ekki sjá sig næsta klukkutímann.(bruunalykt..)


En hvað við erum nú fallegar... ( haha dadda min? )

Eitt stykku niðurdrepandi blogg :]


Inga Rún Bjarnadóttir








Smáa letrið: orri

» 12 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 19:01:29 / ingaa

Krúttlegir sleikjópinar og skurðhnífar? nice...

Stundum efast ég um að ég sé kvenkyns... er ekki alltaf sagt að konur geti gert tvo hluti í einu? hah.. einmitt það já, svona til að nefna eitthvað þá var ég að tala í símann rétt áðan og reyna að skipta á rúminu.
Allt í lagi með það nema hvað, litla fröken ég missi símann og í ákafa mínum við að reyna að grípa hann aftur á dramatískan hátt áður en hann skellur í gólfið gríp ég símann svo hratt að ég skelli honum í augabrúnina á mér ( já gott fólk augabrúnina ekki augnbrúnina, mér er alveg sama hvað þið segið ).
Ég efast ekki um að ég fái marblett, smart? já...

Er að fylgjast með viktori orra sem situr fyrir aftan mig í einhverjum tölvuleik, hann er búinn að sitja þarna í örugglega einn og hálfan tíma þar sem hann er gulur blómálfur sem er fastur í völundarhúsi sem er eingöngu búið til úr blóðslettum, krúttlegum sleikjópinnum, skurðhnífum, plasthönskum og karmellum, flugum og tönnum( sniðug blanda) er þetta heilbrigt?  maður spyr sig... ( hann er 4-5 ára takk fyrir)

Svo styttist bara óðum í ferðina! wíw, uum það bil 31 einn dagur í þetta. Sem minnir líka á það að prófin byrja í næstu viku. Mér finnst ég bara nýbyrjuð þarna en samt sem áður er að verða liðið ár.
Ég man ennþá þegar mamma knúsaði mig og sagði við mig á 10 ára afmælinu mín " inga mín, nú ert þú komin í tveggja stafa tölu" ég: ókei mamma, ég veit sko... eeh mamma... fólk er að horfa...


(heh) Wá hvað tíminn lýður hratt..


ingarúnbjarna :*

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 18:33:59 / ingaa

Under-cover og allur pakkinn

Ég hef ekki tíma til að blogga, en samt þrjóskast ég við eins og vanalega. Ég hef svo margt annað sem ég ætti að vera að gera núna, að það nær engri átt, ég virðist samt alltaf finna leið til að taka ranga ákvörðun og gera eitthvað sem kemur mér að nákvæmlega engu gagni.

Ég hélt að ég hefði séð það kjánalegasta af öllu kjánalegu þangað til í dag. Hver veit hvað heimurinn hefur ekki uppá að bjóða....

Föstudaginn þar seinasta minnr mig, fórum við stelpurnar að kaupa nammi ( surprised? ). Vorum búnar að vera þarna nokkuð lengi og ég var farin að taka eftir einhvejrum gaur þarna sem var endalaust að stússast í kringum okkur og taka upp hluti og setja þá aftur niður, og alltaf gjóaði hann augunum að okkur... 5 mínutum seinna var gaurinn ennþá þarna, að gera nákvæmlega ekkert, horfa út í loftið og skoða verðmiða. Við vorum farnar að halda að hann væri að reyna að stela, og ákváðum að forða okkur.

Í dag fórum ég, sandra, iðunn og steiney niður í hagkaup, steiney ætlaði eitthvað að kaupa sér nammi. Heyrðu... erum eitthvað að labba þarna í kring og hver birtist ekki allt í einu upp úr þurru nema þessi blessaði gaur. Hann byrjaði að snuðrast eitthvað í kringum okkur aftur og taka upp grilljón snakkpoka og skila þeim svo aftur... og eenn og aftur gjóandi augunum að okkur stanslaust.

Hagkaup er komið með nammispæjara. Og hann var sko under-cover og alles. Með derhúfu og ómerktur.


Hversu lágt á fólk að leggjast, ég er viss um að það hefði mikið meiri áhrif á fólk ef þarna stæði bara maður merktur HAGKAUP að fylgjast með fólki. Frekar en einhver krípí gaur sem næstum þefar af manni.

 

nenni ekki meir

seinna

 

 

ingarúnbjarna *


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 19:13:46 / ingaa

Akureyraferð!



Shiit, ég veit ekki hversu oft ég hef lent í því að hafa geðveika löngun til þess að sparka í tölvuna.. ( Að fólk skuli kalla mig ofbeldishneigða..)
Ég virðist aldrei læra af því að copya textann sem ég er búin að skrifa áður en ég save-a! Já Inga, áður en þú save-ar, þetta er ekki flókið.
Þetta he****, nei fyrirgefið, yndisfríða blog kerfi er að gera mig græna, þegar því þóknast að trampa ofan á góða skapinu mínu og skemma bloggin mín, þá hugsar það sig ekki um tvisvar, neeeii það gerir eins og Orri, framkvæmir bara.

En fyrst ég er nú að fara að skrifa þetta allt aftur þá þýðir víst voða lítið að brjóta stólinn og lemja skjáinn...

Steiney, ætlaði bara að segja takk fyrir hjálpina á laugardaginn, veit ekki hvað ég hefði gert ef þú hefðir ekki veirð þarna.

Svona svo að þið hin skiljið þetta þá átti ég að fara með "hoppi" til ak á laugardaginn kl 2. Steiney gisti hjá mér og við vorum komnar heim um svona 2 leitið á föst. kvöldið. Morguninn eftir, okkur til mikillar ánægju riðst einhver brjálæðingur inn í herbergið kl svona 10 öskrandi ,, Tímiii til að vaaknaaaa"(ég efast ekki um að þið vitið hver hann er ). En hann var fljótur að forða sér eftir að hafa fengið nokkra óhreina sokka og einn kodda í hausinn
Eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir til að sofna aftur fórum við fram og fengum okkur morgunmat. klukkan svona hálf ellefu datt okkur í hug að kannski væri sniðugt að fara að pakka.

Kl tíu mínutur í 11 hringdi ég upp á flugvöll til að athuga hvort það væri ekki örugglega ennþá laust. Heyrðu, er þá ekki allt fullt með 2 fluginu. En konan segir að ef ég dríf mig þá gæti ég náð 11:15 fluginu. Já núnú, hámark bjartsýnirinnar!
En þar sem ég vaknaði í frekar góðu skapi, og sá eitthvað fáranlega jákvætt við það að pakka, gera mig til og redda mér fari á tíu mínútum stökk ég af stað að redda þessu.
Ég henti fullt af fötum út úr skápnum sem Steiney tróð fyrir mig ofan í töskuna, var hlaupandi um húsið með símann við eyrað, tannbursta og tannkrem í annari og fullt að blautum fötum og pokum og öðru ónefndu í fanginu. En með erfiðismunum tókst okkur að redda þessu og Pálmi kom að sækja mig, ég efast um að ég þekki nokkurn sem hefur verið keyrður á svona stórum trukk á flugvöllinn, hefði getað komið nokkuð þúsund ingum þarna inn í "skottið".

Í brjálæði mínu gleymdi ég að skilja hurðina eftir opna fyrir evu ( sem fór út í göngutúr lyklalaus ) og hún var læst úti í klukkutíma... frábært.. sorry eva..

Annars er ég búin að hafa það geðveikt næs hérna, fórum í sund í dag, sól og blíða 16 stiga hiti held ég, reyndar smá vindur. Þó svo að þessi blessaða "brettaferð" mín hafi ekki beint farið eins og hún átti að fara. Þá er þetta búið að vera geðveikt gaman, oog ég er meira að segja búin að læra eitthvað þótt ótrúlegt sé! Svo ég er sátt.
Sit núna étandi íspinna með kötu, danna, kareni og nokkrum í viðbót.

Eftir þetta páskafrí tekur örugglega við kvíðakast fyrir prófunum, sem ég er voða lítið að hugsa um sem stendur. En svoo bara vikusigling um karabíska hafið? mðjééhh :D


Wó, langt blogg.. veit ekki hvort þetta virkar núna, neitaði að koma inn áðan.




Ég efast um að nokkur nenni að lesa þetta, eeen sýndu smá effort, láttu sem þú hafir lesið þetta og kommentaðu.


Inga Rún Bjarnadóttir


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 20:12:50 / ingaa

En ég verð!!

Svona til að byrja þetta vel, þá vil ég segja ykkur frá enn einu gullinu frá Viktori Orra.

Ég og Eva sátum inni í herbergi í dag, að tala um ferðina okkar í sumar ( sigling um Karabíska hafið, á geðsjúku risa skemmtferðaskipi( ahh sól )).
Allt í einu þýtur Viktor Orri á milljón skransandi inn í herbergið og grýpur pakka af tannþráð sem liggur á rúminu hjá Evu og opnar hann, ég lít spyrjandi á Evu og hún spyr hann hvað í ósköpbúunum ( eeerr )hann sé að gera, og segir honum að skila tannþráðnum.
Viktor Orri: Nei æj mamma! Það er fluga uppi og ég VERÐ að binda hana!!!!!!!!

BeachcomberSS2.jpg


Annars er kosningarvika uppi í skóla og allir eru ólmir í að fá sem flest atkvæði og eru fullt af litlum básum niðri og fólk, brosandi sínu blíðasta gefandi gos, nammi, mat, boli og hluti. Eftir 2 mínútna gang þarna er búið að troða upp á mann þrjátíu litlum krúttlegum bæklingum og fylla vasana hjá manni af sælgæti. Ég persónulega hef ekkert á móti þessu þar sem þetta þýðir svo mikið sem engin eyðsla á "öllum" engu peningunum mínum ( á ekki krónu ) og að maður þarf ekki að koma með nesti ( já ég er lúði ).
Ég veit ekki hvað ég á af mér að gera, heimalærdómurinn er að drepa mig, ég virðist vera að falla í spænsku ( eins og meirihlutinn af bekknum ) ef ég fer ekki að reyna að fylgjast með í tímum. Ætli þetta blessaða drauma páskafrí mitt endi ekki með hellings lærdómi, ef ég það er að segja fæ sjálfa mig til þess að drattast til að líta í hel***** ( blótiblót ) bækurnar. Það þarf þó nokkuð mikinn viljastyrk í það þegar allt hið fagra í heiminum kallar á mann, en vér megum eigi bugast ( ahh svooo ljóræn ). gay



Er annars búin að fá æfingaraksturinn minn! Svo loksins, loksins gott fólk verður umferðin "örugg" .


IngaRúnBjarna..*




» 6 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 21:35:15 / ingaa

Já gott fólk, það heitir snjór

Snjór, eitthvað sem ég myndi undir venjulegum kringumstæðum fagna með mikilli ánægju og gleði í hjarta... en nú, þar sem hægri löpp mín hefur gerst sjálfstæð og ákveðið að fara í rugl, og ég virðist ekki geta gengið í lokuðum skóm þar sem þeir ýta svo fast á löppina á mér að ég get ekki gengið án þess að það sé eins og verið sé að stinga hníf í ristina á mér og snúa í sárinuuu þá er ég ekki glöð. Er ég bara óvenju svartsýn eða er möguleiki að ganga í svona opnum sumarskóm í 7 cm snjó? Tjah, ég veit ekki, það fer eftir því hvort fólk kýs að vera í blautum sokkum eður ei í skólanum, hver vill? theeeh eeekki hún ég..

Er að neyða mig til að blogga þar sem ég hef ekkert betra að gera og valið stendur á milli þess að þykjast læra og vera í tölvunni eða þykjast læra og vera í tölvunni. Wá hvað það er óvenju stutt í prófin! Mér finnst eins og ég sé nýbúin með jólaprófin, svo er skólinn að nauðga okkur og mér finnst ég ekki hafa tíma fyrir neitt, og í þau fáu skipti sem ég hef tíma þá er ég í svo miklu áfalli yfir að ég hafi tíma að ég sit og stari út í loftið... ( ok bú ýki ég aðeins...) Svo er það þessi blessaði ökskóli sem ég hef verið að forðast frá því ég varð 16 ára, sem var nota bene 13 júlí í fyrra... en betra er seint en aldrei, þó svo að aldrei sé nú freistandi kostur ef ég gæti fengið bílpróf án hans... En hey, lítum á björtu hliðarnar! Hvað er nú betra en að sitja ein úti í horni, horfa á aðra bora í nefið , hlustandi á einhverja konu babbla um umferðareglur í fjóra klukkutíma! Tjah, ég held að það gerist bara ekki betra! hveeer vill?


Inga Rún Bjarnadóttir :*

» 7 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 16:49:52 / ingaa

Koddu kísiiii... murr

 

Hefur þú einhvern tímann hitt indælan taxa bílstjóra? Neeei þeir eru sjaldgæf tegund í þessum heimi.. Ég hitti í fyrsta sinn góðan taxabílstjóra í gær. Ég, Sara, Steiney og Berglind vorum að taka taxa af fg ballinu og svo vorum við að nálgast arnanesið og þá vorum við eitthvað að tala um að ég myndii borga það aukagjald sem kæmi upp ef ég vildi láta skutla mér alla leið heim annars þyrfti ég bara að labba af arnanesinu( sem væri alveg sangjarnt ef ég hefði ekki verið í þunnum kjól einum fata, engan jakka eða neitt ) og ég er búin að vera endalaust veik síðastliðna hálfa árið og vorum við eitthvað að tala um þetta og ég sagði að ég færi þa bara ut a arnarneshæðinni. Þá sagði bílstjórinn bara að þetta væri ekkert mál, hann myndi bara stoppa mælirinn og skutla mér heim, setja hann svo aftur i gang þegar hann væri kominn aftur upp á hæðina.. við bara haaa?8| öööömmm.. takk!

Þetta er eitthvað sem ég hef nú aldrei upplifað áður, seinast þegar ég tók taxa neitaði gaurinn að skipta upphæðinni í fernt, og ég rétti honum 1000 kallinn minn til að skipta honum í tvennt og hann bara neitaði að skila honum og ég var svo þreytt að ég meikaði engan veginn að byrja eitthvað að rífa mig .

* * * * * * * * * * * * * * * * * *


Ég er að verða geðveik, í hvert einasta skipti sem ég fer inná einhverja bloggsíðu þá gerir eitthvað stórundarlegt lag innrás á mig í sakleysi mínu, 3 sekúntna lag sem endurtekur sig í sífellu! Er ég sú eina sem verð vör við þetta? Þetta er allvegana að gera mig græna... Er að velta fyrir mér hvort ég sé ímyndunarveik eða hvort blog.central kerfið sé núna virkilega að tapa vitinu.... Mér finnst mjög ólíklegt að allir bloggsíðueigendur séu að gera uppreisn þannig ég hallast svona að minni ímyndunarveiki ( ég meina, búandi með því fólki sem ég bý, og eigani þá ættingja sem ég á, undir þeim kringumstæðum þá væri það svosem ekkert undarlegt) eða kannski kosti nr 2...


Mika:lollipop" heeeeeeh kemur mér alltaaf í gott skap


Ingarún :*


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 14:05:58 / ingaa

eeelsku inga



Bjarni byrjaði að tala í tíma um að það væri búið að finna líkið af Jesú, gröfina hans og Maríu mey og eitthvað fleira ( man ekki afhverju ) Og við vorum eitthvað að tala um þetta þegar Steiney sneri sér við og spurði með undrunarsvip á andlitinu hvort að líkið af honum hefði verið þarna..

við: nei nei steiney, það var bara mold...
Steiney: neiii, en hvernig vita þeira að þetta var hann, eru þeir búnir að bera saman DNA eða eitthvað? hafa þeir einhverjar sannanir?
Við: já, þeir eru með DNA-ið af Jesú inní tölvunum....
Steiney: neei æjjj ohh, ég er að meina, þúst... var eitthvað sérstakt við DNA iið hans? Því hann á að vera Jesú..?
Orri: Já.. það er svonakrosslaga, það er þannig sem þeir fundu það út
Steiney: haha þegiði...

Já sumir eru ljóshærðari en aðrir,


                                                                                                


Annars á ég einn mest óþolandi og þó krúttlegasta litla frænda í heimi....ég var að flokka einhver blöð og eitthvað drasl úr skólanum og sat í tröppunum uppi. Svo finn ég einhverja gamla ókláraða teikningu sem ég og lena teiknuðum saman og viktor orri sat þarna eitthvað voða saklaus að púsla. Þurfti að leggja blaðið frá mér einhversstaðar og sagði bara við viktor orra að hann mætti eiga þetta. Hann varð svo glaður, að ég held ég hafi ekki séð svona mikið þakklæti frá einni manneskju síðan ég var lítil og fór út í garð og reif nokkur strá upp með rótum og gaf mömmu rosalega stolt á svip og fékk "mamma:wáá eeeeen fallegt, takk eeeelsku inga mín:D" ahh góðir tímar... Allavegana, þá varð hann svo glaður að hann hljóp niður að sýna öllum. (ath þetta var eitthvað ómerkilegt krot á blaði) Síðan kom hann upp og fór inn í eldhús..

Eftir svon tíu mínútur kom hann með blað og penna og spurði mig hvernig maður skrifar Inga, ég sýndi honum það og hann fór brosandi fram... seinna kom hann aftur og spurði hvernig maður skrifar elsku inga? ... tíu mínutum seinna kom hann með nýtt blað rosalega einbeittur á svip og spurði hvernig maður skrifaði " elsku inga ég gæti ekki lifað án þín?" (hann er 4 ára)

Er þetta sætt eða er þetta sætt? ... Haha hvað ætli gerist ef maður gefur honum nýtt dót?... úff


Hef ekki frá fleiru að segja... er að fara í ökuskóla 1 um helgina... já ég veit ég er sein í þessu...en betra er seint en aldrei!



Ingarúnbjarna*




» 6 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 18:21:50 / ingaa

eeeeeeh...Gleeði í hjarta

Sit hérna uppí rúminu mínu umkringd sængum og koddum með stórundarlegan svartan og hvítan kött bítandi í löppina á mér. Í ný "endurhannaða" herberginu mínu veltandi fyrir mér í hvað sunnudagskvöldið ætti að fara( kannski læra undir spænskuprófið sem ég var rétt í þessu að uppgvöta að ég er að fara í á morgun). Ég veit ekki hvað ég á af mér að gera, ég finn eeeekkert af fötunum minum. Er að fara að fá nýjan skáp og þurfti að troða öllum fötunum minum í kassa. Og þar sem ég er líklega skipulagðasta manneskja í heimi tróð ég bara öllu ofan i kassa stappaði ofan á því og setti lokið á, án þess að hugsa að ég þyrfti líklega að nota þetta á næstunni. Svo að nú fer minnst hálftími af hverjum morgni i það að leita að einhvejru til að vera í. Er nýbúin að taka allt til í herberginu og er að pæla í því hversu margir klukkutímar eru í það að ég rústi öllu aftur og mamma byrji aftur að nöldra..

Ég get ekki lýst því hversu mikið ég þrái sumarið núna. Öll von um snjó og brettaferðir er að verða að engu, ég er ekki búin að komast EINU SINNI á bretti í allan vetur, Já það er rétt, ekki einu sinni EINU SINNI! Ég er því bitur á háu stigi og bíð sumarsins með óþreyju!*
Ég þoli ekki þegar árstíðirnar geta ekki staðið við sitt... ef þú heitir vetur þá stendurðu við það! Það þýðir snjór og brettaferðir. Ég hef áhyggjur af að það séu komnir grænir blettir á brettið mitt.
Þoli ekki þegar ég vakna og það er glampandi sól úti og svo þegar gleðin rýs í hjarta manni og maður stekkur út með óhemju mikla tilhlökkun í huga sér ( ahh ég er svo ljóðræn ) þá tekur ómannlegur nístandi kuldi á móti manni og maður þarf að týna á sig snjógallann. Þetta er alveg óþolandi..

Neeeeeiiii, enginn viktor orri í þessu bloggi?




IngaRúnBjarna :**

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 12:32:03 / ingaa

Smá krot

Ég átti góðan mánudagsmorgun, það er byrjaði hann á því að fá mér svona drykkjarjógurt sem eva bjó til. Baddi var svo indæll að leyfa mér að fá far upp í skóla... Baddi keyrði, og baddi keyrði... og baddi bremsaði... harkalega! og á meðan á þessu stóð vildi svo skemmtilega til að ég var að dreekkaa jógurtið mitt, og nema hvað, ég hellt ógúrt á mig alla, á trefilinn minn, peysuna andlitið buxurnar, aaaallt í bleikum jógurt.. reyndar náði eg að þrífa þetta af en ég lyktaði eins og jógurt þangað til að ég komst heim að skipta um föt.


Sit hérna og borða cocoa-puffs ( ekki með mjólk ) spes? neeii... við gerum þetta öll það vill bara enginn viðurkenna það. Var annars að velta fyrir mér hvort ég ætti að fara sem skiptnemi eða ekki... Mig langar geðveikt að fara, en það er svo margt sem heldur aftur af mér. Ég væri þá nátúrulega ða fara burtu i heilt ár, og það er ekkert lítill tími, maður missir samband við svo marga og missir af svo miklu, þó svo að reynslan við að fara gæti alveg bætt manni það upp.
Berglind er að fara til Ítalíu og Steiney til Ecuador. Í heilt ár ...

IngaRún




» 6 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 18:01:39 / ingaa

mkaaaiii

Ég sit hérna í sófanum heima hjá steiney og berglindi þar sem ég og steiney erum skildugar til að skrifa ritgerð fyrir morgundaginn, úr bók sem ég hef ekki lesið, um rithöfund sem við vitum nákvæmlega EKKERT um og við höfum bara tvo klukkutíma til stefnu, sumir myndu kannski kalla okkur bjartsýnar?

Vil líka óska Lilju til hamingju með að þurfa að gefa ríkinu eða lögreglunni 50.000, fyrir að keyra á 111 km hraða þar sem hámarkshraðinn var hveeeersu mörgum tugum minni? Og var ég búin að segja ykkurað Orri kveikti í úlpunni hennar steineyjar... já orri kveikti í steiney.

Ég er enn í sæluvímu þar sem þráðlausa netið heima er loksins LOKSINS komið i lag!

Eeeeen, að öðru óskemmtilegra málefni... Kisinn minn var búinn að vera týndur í tíu daga, og kom heim í nótt, allur í maski, drulluskítugur, þar sem feldurinn atti að vera hvítur var hanndökk dökk grár. Allur í sárum, gekk eins og hann væri fótbrotinn oorðin helminginn léttari, ekki búinn að borða í tíu daga. Þegar hann svo loksins komst heim og í mat var hann svo upptekinn við að troða nefinu ofan í matinn að hann gat ekki borðað... fórum svo með hann upp á dýralæknastofu og þá kom í ljós að hann var kominn með skakkan hrygggjalið, allur í sárum og ég veit ekki hvað og hvað. Sögðu að hann ógeðslega heppinn, því hann ætti að vera lamaður.

IngaRún :* 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 15:21:27 / ingaa

kll

Ég veit ekki hversu oft ég er búin að gera þau mistök að vera búin að blogga heilan helling hérna, og svo hefur mér með naumindum og á einhvern undraverðan hátt tekist að eyða fagra textanum mínum... Þetta virðist vera einn af þeim hlutum sem ég ætla mér ekki að læra af. Annars er ég nokkuð viss um að það, að það er ekki hægt að copy-a textann á tölvunni minni hafi haft eitthvað smá með það að gera.

Ég á undarlega fjölskyldu, ekki það að fólk sé ekki löngu hætt að furða sig yfir því. Kemur fáum á óvart lengur, þó svo ég hafi sjaldan séð lifandi veru ganga út úr húsinu okkar án þess að vera furðu lostinn á svipinn. Þessari fjölskyldu minni tilheyrir svo Eva Dögg Long Bjarnadóttir.
Um daignn keypti mamma stóran kassa af poppi, svona huges sem er með fullt af litlum pökkum inní. Ég tók eftir því strax fyrsta daginn að það fylgdu með hverjum kassa svona tatto af ice-age köllunum, ooog ég hugsaði bara til Viktors Orra.
Síðan er Eva að fara að poppa og það heyrist í henni "OMG ÞAÐ ERU ICE-AGE TATTÚ SEM FYLGJA MEÐ INGA!!" ég svonaaa.. heeeeeh já ég veit...
Nokkrum dögum seinna var ég að leita að einhverju inni í skáp og sá að það var búið að rífa upp alla poppkassana og taka tattúin úr


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 22:16:44 / ingaa

aaah það hreyfist!

já ég kann ennþá á lyklaborðið! .. ég veit ekki hversu oft ég hef sest við tölvuna og ætlað að blogga en svo fundið mér eitthvað miklu betra að gera..
Eins og til dæmis núna þá ætti ég að vera lesa náttúrufræði bókina mína en ekki blogga. En ég virðist vera með sterka tilhneigingu til að gera hluti sem ég á ekki að vera að gera.

Tók eftir að ég var seinast að blogga um excel.. Sem ég féll í.. Já ég endurtek.. Féll í! Þið skemmtið ykkur ef til vill yfir að heyra það, að mér tókst að ýta á delete takkann í endanum á prófinu og eyða öllum fallegu excel formúlunum mínum út, og litla fröken klára ég fékk 3.. YAY..
Þú veltir því örugglega fyrir þér hvenrig mér tókst það... en mér tókst það...

Svo ég neyddist til að taka endurtökupróf sem ég lærði fyrir eins og heilaþveginn brjálæðingur. Og ég náði! (lenaa!)

Annars er ekki margt að frétta, Nemó nálgast hratt! Bara í næstu viku:D og allt stefnir í að ég haldi morgunpartýiið.
Ahh ég fæ vatn í munninn við tilhugsunina um þennan dag... Djöfull verður þetta gaman ( p.s kostar 2500 fyrir gesti minnir mig, aðeins 400 miðar r sumn, svo drifið í þessu þið sem ætlið, það selst upp á engri stundu )

Sit hérna, horfi á Evu Dögg baka og nátturufræðibókina mína til skiptis, með góðri samvisku.

Steiney: Já sko, barnið er alveg byrjað að þroskst! Komið með alla útimi, öll nef og allt!

ég og orri: öll nef? oookay...


P.s... Sakna þín Lena :*


-IngaRúnBjarna :*






» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan